Um Mysuna
Mysan er íslenskur skopmiðill. Allar fréttir á vefnum eru uppspuni. Persónur í þeim eru tilbúnir einstaklingar og allur svipur með raunverulegu fólki er tilviljun.
Allar greinar eru skrifaðar með aðstoð gervigreindar og ritstýrðar af fólki. Hver grein ber merkið „Með aðstoð gervigreindar“ og stutta skýringu þar um.
Við beinum spjótum okkar að stofnunum, kerfum og þeim sem fara með völd, ekki að viðkvæmum hópum. Stofnanir og fyrirtæki geta komið fyrir, en talsmenn þeirra eru ónafngreindir og við leggjum aldrei raunverulegu, nafngreindu fólki orð í munn.
Ljósmyndir eru fengnar af Unsplash og öðrum myndabönkum með frjálsum leyfum og eru alltaf merktar ljósmyndara. Þær tengjast efni greinanna ekki beint.