Fornleifafræðingar fundu eldri „nýjan spítala“ undir nýja spítalanum
Rústirnar eru taldar vera frá fyrri tilraun til að byggja nýjan spítala. Undir þeim fannst önnur.

Við jarðvinnu á framkvæmdasvæði nýja Landspítalans við Hringbraut komu verkamenn í vikunni niður á rústir sem í fyrstu voru taldar frá landnámsöld. Við nánari skoðun reyndust þær vera grunnur að nýjum spítala.
„Við vorum mjög spennt,“ segir fornleifafræðingur á vettvangi. „Svo fundum við skilti sem á stóð: Nýr spítali, tekinn í notkun innan fimm ára. Það var á dönsku.“
Undir rústunum fannst svo þriðji grunnurinn, enn eldri, ásamt kostnaðaráætlun sem hljóðaði upp á „sanngjarna upphæð“. Áætlunin hefur nú verið uppfærð og hljóðar upp á „ósanngjarna upphæð“.
Hugmyndin um nýjan þjóðarspítala hefur verið til umræðu frá því löngu áður en flestir núverandi starfsmenn spítalans fæddust. Fyrsta skóflustungan hefur verið tekin svo oft að skóflan sjálf er orðin safngripur.
Sigurlaug (81) var sett á biðlista eftir mjaðmaaðgerð árið sem framkvæmdirnar voru kynntar. „Mér var sagt að ég kæmist að á nýja spítalanum,“ segir hún. „Ég var þá 43 ára.“
Verkefnastjóri framkvæmdanna segir verkið á áætlun. Spurður hvaða áætlun sé átt við svarar hann: „Þá nýjustu. Hún stenst alltaf, því við gerum hana eftir á.“
Á framkvæmdasvæðinu starfa nú þrjár kynslóðir sömu fjölskyldu. Afinn steypti grunninn, sonurinn leggur raflagnir og barnabarnið, sem er sex ára, hefur þegar verið ráðið til að klippa á borðann.
Ráðgert er að spítalinn verði tekinn í notkun „á næstu árum“, sem er sama tímasetning og gefin hefur verið upp frá upphafi. Heimildarmaður innan verkefnisins segir það bera vott um mikinn stöðugleika.
Mysan er skopmiðill. Þessi frétt er uppspuni og persónur í henni tilbúnar.