RÚV fær að leggja niður aðra útvarpsrásina – sameinar þær í Rás 1,5
Á nýju rásinni verða veðurfregnir lesnar yfir danstónlist og útfararauglýsingar fluttar sem rapp.

Nýtt lagafrumvarp heimilar Ríkisútvarpinu að hætta að senda út tvær útvarpsrásir. Stofnunin hefur þegar kynnt lausn sem hún segir að muni gleðja alla hlustendur jafnt, eða pirra þá jafnt: Rás 1 og Rás 2 verða sameinaðar í eina, Rás 1,5.
„Við skoðuðum hvort ætti að loka Rás 1 eða Rás 2 og komumst að því að við myndum missa helming hlustenda hvort sem væri,“ segir talsmaður útvarpsins sem ræddi við Mysuna. „Með því að sameina þær missum við vonandi bara um það bil 75 prósent.“
Dagskrá Rásar 1,5 hefur þegar verið kynnt. Morgunleikfimin verður gerð við tekknó, hádegisfréttir lesnar í rímuðu formi og útvarpsleikhúsið mun framvegis taka nýjustu smellina í hljóðrænum sviðsetningum. Á föstudagskvöldum verður sinfónían látin spila óskalög hlustenda.
Steinunn, 74 ára hlustandi í Hafnarfirði, hefur hlustað á Rás 1 síðan 1962. „Ég heyrði dánarfregnir í morgun undir einhverju sem barnabarnið mitt kallaði „banger“. Ég veit ekki hvort ég á að syrgja eða dansa. Ég gerði hvort tveggja.“
Ungur hlustandi Rásar 2 segist líka hafa orðið var við breytinguna. „Ég kveikti á útvarpinu í bílnum og það var maður að lesa ljóð um mosa í korter. Svo kom lag. Svo kom aftur mosi.“
Frumvarpið kveður einnig á um að framlög til útvarpsins lækki. Ríkisútvarpið segist ætla að mæta því með því að senda Rás 1,5 aðeins út á hálfu tíðnisviði.
Ráðuneytið segir að ef vel gengur megi skoða að sameina sjónvarpsfréttir og Krakkafréttir á svipaðan hátt. Þar yrðu fréttirnar þær sömu, en útskýrðar betur.
Mysan er skopmiðill. Þessi frétt er uppspuni og persónur í henni tilbúnar.
Fleiri fréttir
- Greiðslukerfi landsins lá niðri í hálftíma – þjóðin upplifði í fyrsta sinn í áratugi að ekkert væri dregið af henni
- Maður sem hélt að hann væri í leigubíl gefur lögreglunni fimm stjörnur – „besta ferð sem ég hef fengið í miðbænum“
- Íþróttafréttamenn skilgreina hugtakið Íslendingalið upp á nýtt – nú nægir að Íslendingur hafi keypt treyju