Barn fékk leikskólapláss í Reykjavík – var þá komið í menntaskóla
Foreldrar eru farnir að skrá börn á biðlista fyrir getnað. Borgin segist vera á réttri leið.

Sautján ára stúlka í Vesturbænum fékk í vikunni bréf frá Reykjavíkurborg þar sem henni var tilkynnt að hún hefði fengið leikskólapláss frá og með 1. desember. Stúlkan er á öðru ári í menntaskóla.
„Við vorum búin að gleyma að við hefðum sótt um,“ segir móðir hennar. „Hún var skráð á biðlista daginn eftir að hún fæddist. Ég grét þegar bréfið kom. Fyrst og fremst af gleði yfir því að kerfið virkar, á endanum.“
Stúlkan hyggst þiggja plássið. „Ég fæ hádegismat, hvíld eftir mat og útivist tvisvar á dag,“ segir hún. „Það er betra en í skólanum.“
Samkvæmt borginni hefur meðalaldur barna við inntöku lækkað verulega og er nú „undir 18 árum í flestum hverfum“. Talsmaður borgarinnar segir þetta sýna að aðgerðir hennar séu farnar að skila árangri.
Foreldrar hafa brugðist við með ýmsum hætti. Sífellt fleiri skrá börn á biðlista áður en þau koma undir, og á fæðingardeildinni er nú boðið upp á að fylla út umsókn um leikskólapláss á milli hríða. Par í Hlíðunum skráði ófætt barn sitt á biðlista á fyrsta stefnumóti. „Við vorum ekki viss um að þetta gengi upp á milli okkar,“ segir faðirinn. „En plássið vildum við ekki missa.“
Þeir sem ekki fá pláss hafa þurft að leita annarra lausna. Afar og ömmur á höfuðborgarsvæðinu hafa stofnað óformlegt stéttarfélag og krefjast nú kjarasamnings. Fyrsta krafan er að fá að fara til Tenerife.
Borgin hefur kynnt nýja lausn á vandanum: frá og með næsta hausti geta foreldrar valið á milli leikskólapláss og íbúðar. Ekki er hægt að fá hvort tveggja.
Mysan er skopmiðill. Þessi frétt er uppspuni og persónur í henni tilbúnar.